Erlendir ferðamenn sem sóttu Iceland Airwaves-hátíðina heim eyddu 450 milljónum króna meðan á hátíðinni stóð. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu sem vitnar í könnun á hagrænum áhrifum komu gesta hátíðarinnar hingað til lands, sem unnin var á vegum Útflutningsstofu íslenskrar tónlistar.

Iceland Airwaves stóð yfir dagana 31. október til 4. nóvember. Gestum hátíðarinnar fjölgaði um 23 prósent frá árinu 2010. Erlendum ferðamönnum fjölgaði um 26 prósent og voru nú tæplega 3.000, en 3.500 Íslendingar sóttu hátíðina. Auk þeirra 450 milljóna króna sem erlendu gestirnir eyða hér á landi, eyða þeir 190 milljónum króna í ferðakostnað. Veltuaukning á milli ára nemur 44 prósentum.

Miðasala er hafin á Iceland Airwaves árið 2012.