Nokkrir erlendir vefmiðlar hafa sýnt handtöku Hreiðars Más Sigurðssonar, fyrrum forstjóra Kaupþings, töluverðan áhuga.
Fréttaveitan Associated Press tók frétt um málið upp skömmu eftir að íslenskir fjölmiðlar greindu frá handtökunni. Síðan hafa ýmsir vefmiðlar tekið fréttina upp, meðal annars vefmiðlar sjónvarpsstöðvarinnar CNBC og Canadian Business Online.
Hreiðar Már var boðaður til skýrslutöku í morgun og handtekinn þegar henni lauk um hádegisbilið. Sérstakur saksóknari hefur farið fram á tveggja vikna gæsluvarðhald yfir honum. Dómari mun taka ákvörðun um hvort að gæsluvarðhaldsbeiðnin verði samþykkt á morgun. Á meðan mun Hreiðar Már gista fangageymslur.
Viðbót 18:31
Vefur breska ríkisútvarpsins, BBC, hefur nú einnig sagt frá handtöku Hreiðars Más. Það hafa vefir bandarísku sjónvarpsstöðvarinnar CBS og fjármálavefurinn This Is Money einnig gert. Auk þess er fjallað um handtökuna á ýmsum norrænum vefmiðlum, meðal annars viðskiptavefur danska stórblaðsins Berlinske Tidende.