Í dag klukkan hálf þrjú munu nokkrir erlendir sendiherrar afhenda Steingrími J. Sigfússyni sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, mótmælaskjal vegna hvalveiða Íslendinga að því er kemur fram í tilkynningu frá ráðuneytinu. Afhendingin fer fram í  sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, Skúlagötu 4, 6. hæð.