Erlendu flugfélögin bættu við sig samtals 126 brottförum frá Keflavíkurflugvelli í janúar milli ára samkvæmt talningu Túrista . Fjölgun farþega um Flugstöð Leifs Eiríkssonar í janúar var um 75.000 en um þriðjungur þeirra var á vegum erlendu flugfélaganna.

WOW air jók við sig um 46.000 farþega í janúar og tók í fyrsta skipti fram úr Icelandair í farþegafjölda líkt og Viðskiptablaðið hefur greint frá . 60% af aukningu farþega milli ára má því rekja til WOW air. Vel innan við einn af hverjum tíu sem bættist við hefur verið á leið í eða úr flugi með Icelandair.