Um 90 þúsund erlendir ferðamenn fóru frá landinu um Flugstöð Leifs Eiríkssonar í júnímánuði eða um 15.500 fleiri en í júní 2012. Um er að ræða 20,9% aukningu milli ára. Kemur þetta fram í tölum frá Ferðamálastofu.

Þegar litið er til fjölda ferðamanna í júnímánuði á því tólf ára tímabili (2002-2013) sem Ferðamálastofa hefur haldið úti talningum í Flugstöð Leifs Eiríkssonar má sjá umtalsverða aukningu ferðamanna en þeim hefur fjölgað úr 32 þúsund árið 2002 í 90 þúsund árið 2013 eða um 59 þúsund ferðamenn. Aukningin milli ára hefur verið að jafnaði 10,1% en sveiflur milli ára hafa verið miklar.

Af einstaka þjóðernum voru flestir ferðamenn í júní frá Bandaríkjunum (19,6%) og Þýskalandi (13,5%). Þar á eftir komu Bretar (7,8%), Norðmenn (7,1%), Frakkar (7,0%), Svíar (5,0%), Danir (4,8%) og Kanadamenn (3,7%). Samtals voru þessar átta þjóðir um tveir þriðju (68,5%) ferðamanna í júní.

Frá áramótum hafa 311.409 erlendir ferðamenn farið frá landinu eða um 66 þúsund fleiri en á sama tímabili í fyrra. Aukningin nemur 27,2% milli ára.

Um 36 þúsund Íslendingar fóru utan í júní eða þrjú þúsund færri en í júní í fyrra. Frá áramótum hafa um 170 þúsund Íslendingar farið utan, um 500 færri en á sama tímabili árið 2012. Fækkunin nemur 0,3% milli ára.