Af þeim löndum sem Evrópska ferðamálaráðið flokkar sem vaxandi áfangastaði (e. emerging destinations) í Evrópu var fjölgun ferðamanna mest á Íslandi í fyrra. Fjölgaði erlendum ferðamönnum hér á landi um tæp 20% í fyrra og í næsta sæti þar á eftir er Litháen með 12% vöxt og Rúmenía með 10% vöxt.
Almennt séð átti ferðaþjónusta í Evrópu góðu gengi að fagna í fyrra og fjölgaði komum erlendra ferðamanna um 4%, sem kemur í kjölfar 7% fjölgunar árið 2011. Eftirspurn frá fjærmörkuðum hélst áfram góð og fleiri Evrópubúar ferðuðust einnig á milli landa innan álfunnar. Þannig er ferðaþjónustan ein fárra atvinnugreina sem sýnir vöxt í álfunni.
Hvað varðar horfurnar 2013 þá segir í ársfjórðungsskýrslu ferðamálaráðsins að efnahagslíf álfunnar fari óðum að rétta úr kútnum, þótt áfram megi búast við þrengingum á sumum svæðum. Áfram er búist við vexti frá fjærmörkuðum á árinu en ferðalög innan álfunnar verða samt áfram lykilþáttur í vexti og viðgangi greinarinnar.