Alls fóru tæplega 190 þúsund erlendir gestir frá landinu um Leifsstöð fyrstu sex mánuði ársins 2008 samkvæmt talningum Ferðamálastofu, en sömu mánuði í fyrra voru þeir 178 þúsund.

Aukningin er um 11 þúsund eða 6,6%.

Þetta kemur fram á vef Ferðamálastofu. Talningin nær yfir allar brottfarir erlendra gesta um Leifsstöð og er vinnuafl sem fyrr inn í þeim.

Þar kemur fram að frá áramótum hefur orðið umtalsverð fjölgun frá Mið-Evrópu, Hollendingum hefur fjölgað um 40%, Frökkum um 24% og Þjóðverjum um 18%.

Norðurlandabúum fjölgar um tæp 5% og munar þar mest um fjölgun Finna.

Bretum fækkar hins vegar um 4% og gestum frá Bandaríkjunum enn meir eða um 23%.

„Að stórum hluta má rekja fækkun Bandaríkjamanna til þess að Flugleiðir hættu flugi til Baltimore um miðjan janúar 2008.  Kanadamönnun hefur hins vegar fjölgað verulega, sem kemur ekki á óvart, en Toronto var bætt við sem áfangastað í maí 2008. Brottförum annarra landa Evrópu og fjarmarkaða fjölgar töluvert eða um 22%, en þar munar mest um Pólverja,“ segir á vef Ferðamálastofu.

„Þrátt fyrir hátt olíuverð og efnahagssveiflur á okkar helstu markaðssvæðum er búist við aukningu ferðamanna í sumar. Búist er við nokkurri fjölgun gesta frá Mið-Evrópu, enda um aukið sætaframboð að ræða og sterka Evru. Erfitt er að spá fyrir um fjölda gesta á heildina litið, enda hefur sjaldan verið eins mikið um bókanir á síðustu stundu og nú í sumar. Þó svo hljóðið sé mismunandi í ferðaþjónustuaðilum búast flestir við viðunandi útkomu í sumar.“