Erlendur Hjaltason, forstjóri Exista [ EXISTA ], var kjörinn stjórnarformaður Spron [ SPRON ] og Ásgeir Baldurs varaformaður að loknum aðalfundi Spron í gær. Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Aðrir í stjórn eru: Ari Bergmann Einarsson, Margrét Guðmundsdóttir og Rannveig Rist.  Margrét og Rannveig eru nýjar í stjórn félagsins.