Bresk-bandaríska netferðaskrifstofan Cheapflights hefur keypt hlut íslenska fyrirtækinu dohop.com, sem stofnað var af Frosta Sigurjónsyni árið 2004, segir í fréttatilkynningu.

Dohop-vefsíðan gerir notendum kleift að leita eftir flugferðum ókeypis á netinu. Kaupverðið hefur ekki verið gefið upp, né hve stóran hlut Cheapflights hefur samþykkt að kaupa.