Erling Ásgeirsson framkvæmdastjóri Sense og formaður bæjarráðs Garðabæjar hefur ákveðið að gefa kost á sér í 1. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í komandi bæjarstjórnarkosningum í Garðabæ en prófkjör um val á frambjóðendum flokksins fer væntanlega fram 6. febrúar n.k.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Erling.

Erling er fæddur árið 1945. Hann hefur langa reynslu af bæjarmálefnum Garðabæjar. Hann var varabæjarfulltrúi á árunum 1986–1990. Erling var kjörinn aðalfulltrúi í bæjarstjórn árið 1990 og hefur átt þar sæti síðan. Hann skipaði efsta sætið á lista Sjálfstæðisflokksins í síðustu bæjarstjórnarkosningunum og er nú formaður bæjarráðs Garðabæjar.

Erling hefur gegnt fjölmörgum trúnaðarstörfum fyrir Garðabæ. Hann hefur m.a. verið formaður íþrótta- og tómstundaráðs og skólanefndar bæjarins og hefur haft mikil afskipti af framkvæmda- og umhverfismálum í bænum.

Erling er kvæntur Erlu Þorláksdóttur og eiga þau þrjú börn.