Erna Bjarnadóttir hagfræðingur hefur verið ráðin verkefnastjóri á rekstrarsviði Mjólkursamsölunnar og hefur þegar hafið störf. Erna starfaði áður sem hagfræðingur og aðstoðarframkvæmdastjóri Bændasamtaka Íslands í 20 ár, auk þess sem hún sat í stjórn Arion banka (áður Nýja Kaupþing) 2008 til 2010. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Erna er búfræðikandídat frá Hvanneyri, með meistaragráðu í hagfræði frá University College of Wales og diplóma í Opinberri stjórnsýslu frá Háskóla Íslands.

„Ég er mjög spennt fyrir nýjum áskorunum. Mjólkursamsalan er eitt stærsta afurðasölufyrirtæki landsins í eigu bænda og hér eru gríðarlega fjölbreytt og krefjandi verkefni. Ég hlakka mjög til að kynnast starfseminni og leggja mitt að mörkum,“ er haft eftir Ernu í tilkynningunni.

„Það er fengur að því að fá Ernu inn í fyrirtækið. Hún hefur dýrmæta reynslu sem mun nýtast okkur vel,“ segir Pálmi Vilhjálmsson aðstoðarforstjóri Mjólkursamsölunnar.