Hagnaður uppsjávarfrystiskipa fyrir afskriftir, fjármagnskostnað og tekjuskatt (verg hlutdeild fjármagns eða EBITDA) sem hlutfall af heildartekjum sjávarútvegsins nam 35,7% árið 2011. EBITDA frystiskipa sem frysta botnfisk var 25,4%, samkvæmt upplýsingum Hagstofunnar .

Hreinn hagnaður (EBT) uppsjávarfrystiskipa, samkvæmt árgreiðsluaðferð, nam 27,4% árið 2011 en 18,9% hjá botnfiskfrystiskipum. Sé miðað við hefðbundna uppgjörsaðferð er hagnaður ársins 2011 26,8% hjá uppsjávarfrystiskipum en 14,4% hjá botnfiskfrystiskipum.