Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hefur komist að þeirri niðurstöðu að samningar United Silicon við Landsvirkjun um kaup raforku annars vegar og við Landsnet um flutning raforku hins vegar, feli ekki í sér ríkisaðstoð. Þetta kemur fram á vefsíðu stofnunarinnar .

Eftir að íslensk stjórnvöld tilkynntu ESA samning um sölu raforku til kísilvers United Silicon í Helguvík lagði ESA mat á samninga Landsvirkjunar og Landsnets við fyrirtækið um sölu og flutning raforku.

„Að mati ESA er samningur Landsvirkjunar um sölu raforku gerður á markaðskjörum og felur þar af leiðandi ekki í sér ríkisaðstoð. Raforkan mun eingöngu koma frá núverandi orkuframleiðslukerfi Landsvirkjunar og raforkuverð samkvæmt samningnum er hærra en meðalframleiðslukostnaður Landsvirkjunar“

Þá telur ESA samning Landsnets um flutning raforku, þ.e. hvað varðar kerfisframlag og niðurspenningu, ekki fela í sér ríkisaðstoð. United Silicon mun ekki fá undanþágur frá gjöldum sem fyrirtækinu ber að standa skil á. Öll gjöld eru reiknuð samkvæmt gildandi reglum á Íslandi og telur ESA því að ekki sé um ríkisaðstoð að ræða,“ segir í tilkynningu ESA.