Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hefur ákveðið að hefja formlega athugun á ríkisaðstoð sem veitt er Íbúðalánasjóði, segir í fréttatilkynningu til Kauphallar Íslands.

Þar kemur fram að með ákvörðuninni er ESA að bregðast við dómi EFTA-dómstólsins frá 7. apríl síðastliðinn, þar sem dæmd var ógild sú niðurstaða ESA, sbr. ákvörðun frá 11. ágúst 2004, að ríkisaðstoðin væri þjónusta í almannaþágu og því í samræmi við ríkisstyrkjareglur EES-samningsins.

Í dómnum kemur fram að vafi leiki um tiltekin atriði og að niðurstöður ESA um þau hafi ekki verið nægilega rökstudd af hálfu eftirlitsstofnunarinnar. ESA mun því hefja nýja athugun málsins og er líklegt að athugunin muni taka um það bil eitt ár.