Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) ákvað í dag að hefja formlega rannsókn á ríkisaðstoð í tengslum við lánveitingar til fjárfestingarbankanna Saga fjárfestingarbanka, VBS og Askar Capital. ESA tilkynnir um þetta á heimasíðu sinni í dag.

VBS fjárfestingarbanki og Askar Capital hafa þegar verið tekin til gjaldþrotaskipta og starfsleyfi Saga fjárfestingarbanka var nýlega afturkallað. Það er engu að síður skoðun ESA að rétt sé að ljúka mati á skilmálum lánveitinganna og fá úr því skorið hvort þeir samræmist ákvæðum EES samningsins um ríkisaðstoð.

Forsaga málsins er að í mars 2009 breytti ríkissjóður Íslands kröfum frá Seðlabanka Íslands í lán á hagstæðum kjörum til fjárfestingarbankanna þriggja. Alls námu lánin um 52 milljörðun króna, en í júlí 2010 barst ESA kvörtun frá hagsmunaaðila vegna þessara lánveitinga.

„Tilgangur lánveitinganna var að skuldbreyta skammtíma veðlánum og verðbréfalánum frá Seðlabanka Íslands í lán til langs tíma en lán Seðlabankans voru fallin í vanskil í kjölfar efnahagshrunsins.

Veðlán Seðlabankans voru veitt með veði m.a. í skuldabréfum útgefnum af viðskiptabönkunum þremur Glitni, Kaupþing og Landsbanka Íslands. Eftir fall viðskiptabankanna í október 2008 lækkaði verðmæti fyrirliggjandi trygginga verulega og reyndist fjárfestingarbönkunum ómögulegt að leggja fram nýjar tryggingar eða gera upp skuldir sínar.

Af hálfu íslenskra stjórnvalda er því haldið fram að með skuldbreytingunni hafi verið ætlunin að verja hagsmuni íslenska ríkisins og þessar ráðstafanir hafi verið í samræmi við það sem almennur lánveitandi hefði gert í sömu stöðu. ESA hefur hins vegar efasemdir um að þeir skilmálar sem ríkissjóður samþykkti séu í samræmi við almenna markaðsskilmála. Ef svo er ekki, kann skuldbreytingin að fela í sér ólögmæta ríkisaðstoð í skilningi EES samningsins,“ segir í tilkynningu ESA.

Leiði skoðun ESA í ljós að ríkisaðstoð hafi verið veitt í bága við ákvæði EES samningsins verður óskað eftir því að íslensk stjórnvöld krefju viðtakendur um endurgreiðslu hennar. Sé um að ræða aðila sem tekinn hefur verið til gjaldþrotaskipta skal lýsa kröfu í þrotabú viðkomandi vegna endurgreiðslu ólögmætrar ríkisaðstoðar.