Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, féllst í dag á þá fyrirætlan ríkissjóðs og Norðurþings að veita fé til uppbyggingar iðnaðarhafnar á Húsavík. ESA álítur að ekki verði veitt opinberu fé til hafnargerðarinnar umfram það sem nauðsynlegt sé. Frjálsri samkeppni er jafnframt ekki talin stafa ógn af ríkisaðstoðinni, að mati ESA.

Oda Helen Sletnes, forseti ESA, segist telja einsýnt að ekki hefði orðið af uppbyggingu hafnarinnar án ríkisaðstoðar en um stórt verkefni að ræða sem muni skila takmörkuðum tekjum til framtíðar.

Fram kemur í tilkynningu frá ESA að Íslensk yfirvöld tilkynntu um fyrirætlanir sínar í júní í fyrra og höfðu fyrr í þessum mánuði veitt ESA allar þær upplýsingar sem nauðsynlegar voru fyrir stofnunina til að leggja mat á hvort ríkisaðstoðin samrýmdist EES samningnum.