Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) vill að íslensk stjórnvöld breyti því hvernig Ríkisútvarpið (RÚV) er fjármagnað til að stuðla að frekara gagnsæi í opinberum fjárframlögum og draga úr hættu á samkeppnisröskun á þeim markaði sem RÚV starfar. Tillagan var birt á vef ESA rétt í þessu.

Tilkynning ESA í heild :

Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) leggur formlega til að Ísland breyti fyrirkomulagi á fjármögnun Ríkisútvarpsins

Markmið slíkra breytinga er að stuðla að frekara gagnsæi varðandi opinber fjárframlög til Ríkisútvarpsins og til þess að draga úr hættu á samkeppnisröskun á þeim markaði sem Ríkisútvarpið starfar. Í raun þýðir þetta  að fjármögnunarfyrirkomulaginu yrði breytt til samræmis við viðmiðunarreglur ESA varðandi ríkisstyrki til aðila sem sjá um útsendingar í almannaþágu, sem samþykktar voru í byrjun árs 2010. [1]

Frestur Íslands til þess að bregðast við tillögum ESA er í lok mars 2011.

Tillögurnar fela í sér að skilið verði á milli starfsemi Ríkisútvarpsins sem telst almannaþjónusta og þess sem lúta skal lögmálum markaðarins. Á meðal breytinganna sem ESA leggur til eru eftirtalin atriði:

  • Að útlista nánar umfang þeirrar aðferðar sem notuð verður við útvíkkun á opinberu þjónustuhlutverki Ríkisútvarpsins;
  • Að sett verði skýr leiðbeinandi viðmið um ákvörðun gjaldskrár fyrir þjónustu sem Ríkisútvarpið veitir vegna opinberrar þjónustuskyldu sinnar, s.s. aðgang að skjalasafni Ríkisútvarpsins;
  • Að settar verði skýrar reglur um meðferð hugsanlegrar ofgreiðslu til Ríkisútvarpsins;
  • Að tekinn verði af allur vafi um að öll starfsemi sem fellur utan hlutverks Ríkisútvarpsins sem veitanda almannaþjónustu skuli rekin á grundvelli markaðslögmála líkt og viðmiðunarreglur ESA mæla fyrir um.

ESA og íslensk yfirvöld hafa rætt þessar athugasemdir í tengslum við meðferð þessa máls. Ísland hefur nú þegar innleitt ákveðnar breytingar í kjölfar athugasemda ESA. Sem dæmi má nefna að eignarhaldi Ríkisútvarpsins hefur verið breytt og fært frá Mennta- og Menningarmálaráðuneytinu til Fjármálaráðuneytisins. Með því var skilið á milli eignarhalds Ríkisútvarpsins og opinbers eftirlits með útsendingastarfsemi sem ætti að skila óháðara eftirliti með útsendingarstarfsemi Ríkisútvarpsins.