Í stað þess að semja lög og reglur fyrir atvinnulífið munu 350 háttsettir embættismenn framkvæmdastjórnar ESB verja einni viku á næstu misserum innan smárra og meðalstórra fyrirtækja og kynnast þar daglegum veruleika í rekstri.

Frá þessu er greint í frétt í fréttabréfi Samtaka atvinnulífsins. Þar kemur fram að tilgangurinn er sá að auka innsýn þessara embættismanna - sem alla jafna semja lög og reglur fyrir atvinnulífið - í þennan daglega veruleika í fyrirtækjunum og að þeir öðlist betri skilning á þeim viðfangsefnum sem þar er við að glíma. Í kjölfarið er vonast til að gæði lagatextanna muni batna.