Jóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, fjallaði um 80% atvinnuþátttöku íslenskra kvenna og 90% þátttöku íslenskra feðra í feðraorlofi og vægi þess fyrir jafnréttismál á Íslandi, í ávarpi sínu á fundi jafnréttisráðherra Evrópusambandsríkja og EES-landa sem nú er haldinn í Slóveníu. Á fundinum kom fram framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hyggst kynna breytingar á reglum um fæðingarorlof sem kveður á um fæðingarorlof feðra.

Fulltrúar 30 landa fjalla á ráðherrafundinum um stöðu jafnréttismála og áhrifaríkar aðferðir til þess að ná árangri á því sviði.

Ráðherra benti á að 80% atvinnuþátttöku kvenna væri eitt hæsta hlutfall sem þekkist á heimsvísu og væri ein af meginstoðum hagvaxtar og jafnréttis á Íslandi. „Sérfræðingar eru sammála um að mikilvægt sé að hefja jafnréttisuppeldi sem fyrst og vil ég leggja áherslu á að efla jafnréttisfræðslu í leikskólum og grunnskólum verulega á næstu árum,“ sagði Jóhanna meðal annars.

Aukið jafnvægi milli vinnutíma

Ráðherra greindi jafnframt frá frumvarpi til nýrra jafnréttislaga sem hún bindur miklar vonir við. Á ráðstefnu um jafnréttismal sem haldin var í tengslum við ráðherrafundinn kynnti Guðný Björk Eydal dósent við Háskóla Íslands nýjar niðurstöður úr rannsókn sem sýnir að íslenskir feður taka aukinn þátt í umönnunar- og heimilisstörfum eftir að löggjöf um fæðingarorlof tók gildi. Niðurstöðurnar benda einnig til aukins jafnvægis milli vinnutíma karla og kvenna.