Steingrími J. Sigfússyni, efnahags- og viðskiptaráðherra, er ekki kunnugt um að Evrópusambandið blandi sér með beinum hætti í umræðum áhrif ESB-aðildar á þá málaflokka sem heyra undir ráðuneytið.
Ásmunur Einar Daðason, þingmaður Framsóknarflokksins, spurði ráðherra að því 21. mars síðastliðinn hver sé skoðun hans á því að ESB, með fjármunum og þátttöku sendiherra og sendiráðs, blandar sér með umræðuna um málið.
Svar fékk Ásmundur á föstudag í síðustu viku, á þriðja mánuði eftir að hann varpaði spurningunni fram.
Ásmundur spurði sömuleiðis hvernig ráðherra hyggist tryggja að starfsemi Evrópuskrifstofu og þeir fjármunir sem ESB ver til hennar, ásamt beinni þátttöku sendiherra og sendiráðs ESB, skekki ekki lýðræðislega umræðu um þá málaflokka sem heyra undir ráðuneytið.
Í skriflegu svari sem birt hefur verið á netsíðu Alþingis, segir að hluti af því að efla umræðu og upplýsingamiðlun um Evrópusambandið meðan á aðildarferlinu stendur er að fjármunir hafa verið veittir af Alþingi til þeirra hreyfinga og samtaka sem halda uppi mismunandi sjónarmiðum í umræðunni.
„Með öflugri og upplýstri umræðu þar sem öllum er gefinn kostur á þátttöku verður endanleg niðurstaða um aðildarsamning í þjóðaratkvæðagreiðslu byggð á upplýstri ákvörðun.“