Eignasafn Seðlabanka Íslands (ESÍ) hefur selt alla 23.713.636 hluti sína í fyrirtækinu Nýherja. Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar .

Sé miðað við gengi bréfa fyrirtækisins í Kauphöllinni, sem skráð er 10,35 krónur á hlut, nema viðskiptin alls rúmum 245 milljónum króna. Fyrir viðskiptin átti ESÍ 5,8% hlut í fyrirtækinu.

Greint var frá því síðasta mánudag að ESÍ hefði ákveðið að bjóða hlut sinn í fyrirtækinu til sölu.