Eskja hf var rekin með 40 milljón króna hagnaði á árinu 2005, að því er fram kemur í tilkynningu frá fyrirtækinu. Þetta er töluvert verri afkoma en árið á undan þegar hagnaður nam nær 342 milljón. Verri afkoma skýrist af niðurfærslu hlutabréfaeignar.

Tekjur Eskju á liðnu ári námu 2855 milljónum og lækka nokkuð á milli ára. Rekstrargjöld voru 2152 milljónir og hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði nam 703 milljónum sem er um 4% lækkun frá fyrra ári. Afskriftir ársins námu 362 milljónum. Fjármagnsliðir voru jákvæðir um ríflega 31 milljón. Niðurfærsla hlutabréfaeignar í Íshafi ehf nemur 323 milljónum á árinu, reiknaðir skattar eru 8 milljónir og hagnaður því um 40 milljónir króna. Heildareignir félagsins í lok árs voru 8631 milljón. Eigið fé var 1755 milljónir eða 20,3%.

Um mitt ár var útlit fyrir að afkoma félagsins yrði betri en raunin varð. Aflabrestur varð í kolmunna seinni part ársins og tekjur félagsins því lægri en gert var ráð fyrir. Skip félagsins veiddu aðeins 48 þúsund tonn af kolmunn á liðnu ári, samanborið við 82 þúsund tonn árð 2004. Tilkostnaður við veiðar var einnig meiri. Móttekið hráefni til bræðslu var 150 þúsund tonn í fyrra, samanborið við 161 þúsund tonn árið 2004.

Rekstri Íshafs ehf var hætt síðastliðið haust. Félagið sérhæfði sig í veiðum og vinnslu á rækju. Forsendur til veiða og vinnslu á rækju hafa þróast mjög til verri vegar síðastliðin ár. Viðvarandi veiðibrestur, lækkandi afurðaverð og síðan mjög sterk króna leiddi til þess að félagið stefndi í þrot og var því ákveðið að stöðva rekstur þess. Hlutur Eskju er 34,4% og er félagið nærst stærsti hluthafinn. Niðurfærsla hlutabréfaeignar í Íshafi hefur veruleg áhrif á niðurstöðutölu rekstrar fyrir árið 2005.

Á haustmánuðum var tekin ákvörðun um kaup á nýju frystiskipi til félagsins frá Noregi. Skipið er nýlegt, smíðað árið 2001 og útbúið til vinnslu og frystingar á uppsjávartegundum; loðnu, síld og kolmunna. Kaupverð skipsins var 1270 milljónir. Jón Kjartansson(nú Guðrún Þorkelsdóttir) var settur á söluskrá, en er nú á kolmunnaveiðum.

Horfur núverandi rekstrarárs eru nokkuð óljósar. Loðnuvertíðin olli miklum vonbrigðum og verður afkoma í loðnuvinnslu mun lakari en undanfarin ár. Afkoman mun að miklu leiti ráðast af aflabrögðum í kolmunna og NÍ-síld. Almennt er verð á sjávarafurðum hagfellt og rekstrarskilyrði því góð ef veiðar ganga vel.