Samningur þess efnis að auka eftirlit með heimagistingu var undirritaður í dag. En það voru þau Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ráðherra ferðamála og Þórólfur Halldórsson, sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu.

Samningurinn kveður á um 64 milljóna króna fjárveitingu til embættisins en það fer með eftirlit með heimagistingu á öllu landinu. Er þetta gert til að  öðlast yfirsýn yfir raunverulegt umfang heimagistingar, tryggja rétt skattskil einstaklinga og að lögaðilar sem stunda gististarfsemi afli sér rekstrarleyfis og starfsemin fari þar með að þeim lögum sem um hana gilda.

Hin svokallað 90 daga regla tók gildi í ársbyrjun 2017 en í henni felst að einstaklingum er heimilt að leigja út lögheimili sín og eina aðra fasteign sem er í þeirra eigu til allt að 90 daga á hverju almanaksári án þess að lúta sömu reglum um leyfi og gjöld og gilda um atvinnurekstur.

Lagt er upp með að átaksverkefnið verði til eins árs og er markmiðið að það hafi hvetjandi áhrif á einstaklinga til að skrá skammtímaútleigu sína. Gert er ráð fyrir að starfsmönnum í heimagistingarvakt verði fjölgað úr þremur í ellefu og koma þeir til með að framkvæma vettvangsrannsóknir í kjölfar ábendinga frá almenningi eða á grundvelli upplýsinga sem koma fram í frumkvæðiseftirliti. Þá verða í hópnum tveir lögfræðingar sem munu halda utan um stjórnsýslumeðferð og ákvarðanir um stjórnvaldssektir.