Áætlaður kostnaður við að halda Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva í Dusseldorf sem fram fer i kvöld er 9,3 milljónir evra, 1,5 milljarður króna. Þá er ótalinn ýmiss óbeinn kostnaður af keppninni.
Dusseldorf er ein fárra þýskra borga sem ekkert skuldar. Ekki er víst að það verði eftir að allur kostnaður verður talinn því viðburðir sem þessir fara oft langt fram úr áætlunum.
Eurovision 2010 í Osló fór langt fram úr áætlun.
Áætlun menningarmálaráðherra Noregs og Norska ríkisútvarpsins (NRK) hljóðaði upp á 150 milljónir norskra króna en kostnaðurinn endaði í 211 milljónum nkr., tæpum 4 milljörðum íslenskra króna. Kostnaðurinn fór því 41% fram úr áætlun.
Dýrasta söngvakeppnin hingað til var keppnin í Moskvu árið 2009 en hún kostaði um 40 milljónir dala, 4,5 milljarða króna.