Eva Joly hefur gert starfslokasamning við embætti sérstaks saksóknara.

Þetta kom fram á blaðamannafundi sem Eva Joly og Ólafur Þ. Hauksson héldu í dag.

Upphaflegur samningur gerði ráð fyrir aðstoð Evu Joly út þetta ár. Hún hyggur nú á forsetaframboð í Frakklandi og hefur því gert starfslokasamning við sérstakan saksóknara.