Eva Joly, ráðgjafi sérstaks saksóknara, sagði á fundi með Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra í dag að hún væri mjög ánægð með þróun mála á Íslandi, ekki síst hve rannsóknarskýrslan væri sterkur og góður grundvöllur fyrir framhaldið. Í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu segir að Eva telji að útkoma skýrslunna markaði tímamót og hún væri einsdæmi í heiminum.

Jóhanna Sigurðardóttir hitti Joly til að heyra hennar viðhorf um stöðu mála og nauðsynlegar aðgerðir við rannsókn efnahagsbrota í ljósi skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis.

Samkvæmt tilkynningu frá ráðuneytinu er haft eftir Joly að „[l]jóst væri að með útgáfu skýrslunnar væri nauðsynlegt að stórefla umfang sérstaks saksóknara og mögulega þyrfti að breyta lögum til að tryggja rannsóknarhagsmuni enn frekar og unnið yrði að útfærslu slíkra tillagana á vettvangi sérstaks saksóknara og dóms- og mannréttindamálaráðuneytis á komandi dögum."

Forsætisráðherra færði Evu Joly þakkir fyrir hennar mikilvægu liðveislu við rannsókn og uppgjör á þeim atburðum sem leiddu til bankahrunsins. „Hennar aðkoma skipti miklu máli í því mikilvæga verkefni íslenskra stjórnvalda að endurreisa traust í íslensku samfélagi," segir í fréttatilkynningu frá forsætisráðuneytinu.