Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir hefur verið ráðin markaðs- og upplifunarstjóri Hagkaups og mun hefja störf seinni part sumars. Um er að ræða nýja stöðu hjá Hagkaup sem er liður í stefnu félagsins að auka upplifun viðskiptavina og þróa stafræna þjónustu við viðskiptavini, að því er kemur fram í fréttatilkynningu. 

Eva Laufey er viðskiptafræðingur að mennt og hefur starfað sem dagskrárgerðarmaður á Stöð 2 undanfarin níu ár þar sem hún hefur komið að dagskrárgerð í sjónvarpi meðal annars í Íslandi í dag og Blindum bakstri. Einnig hefur Eva komið að dagskrárgerð í útvarpi og er annar þáttarstjórnandi í þáttunum Bakaríið á Bylgjunni. 

Hagkaup opnaði nýlega vefverslun með snyrtivörur og stefnan er að auka enn frekar við vörur og þjónustur í versluninni. 

Eva Laufey Hermannsdóttir:

„Ég hlakka til að takast á við ný og ögrandi verkefni. Það er virkilega spennandi að fá að leiða uppbyggingu sem eru þegar hafnar hjá Hagkaup í átt að stafrænni og enn betri þjónustu við viðskiptavini Hagkaups og styrkja upplifun þeirra í verslun og á stafrænum miðlum. Ég þekki Hagkaup vel og hlakka til að nýta mína þekkingu og reynslu við að gera Hagkaup að enn skemmtilegri verslun.” 

Sigurður Reynaldsson, framkvæmdastjóri Hagkaups:

„Við erum mjög ánægð með að fá Evu Laufeyju til liðs við okkur. Við höfum átt ánægjulegt samstarf við hana í gegnum árin við vinnslu á fjölda verkefna. Við erum sannfærð um að Eva sé rétti aðilin í að halda áfram að skapa með okkur ævintýranlega upplifun í verslun þar sem að skemmtilegast er að versla. Það eru spennandi tímar framundan hjá Hagkaup og mörg verkefni í vinnslu sem auka þjónustu og upplifun viðskiptavina enn frekar. Eva verður lykilaðili í úrvinnslu á þeim verkefnum.“