Eva Sóley Guðbjörnsdóttir hefur tekið við sem aðstoðarforstjóri og fjármálastjóri atNorth, áður Advania Data Centers, samhliða fjárfestingu hennar í félaginu.

Eva Sóley, sem er verkfræðingur að mennt og fyrrverandi landsliðskona í knattspyrnu, lét nýlega af störfum sem fjármálastjóri Icelandair Group . Áður en hún hóf störf hjá Icelandair árið 2019 starfaði hún m.a. sem fjármálastjóri Advania, en atNorth var aðskilið frá samstæðu Advania árið 2017.