EVE Fanfest 2013, árleg hátíð leikjaframleiðandans CCP, verð­ur haldin í Hörpu síðustu helgina í apríl í ár. Hátíðin fer fram í níunda sinn en hún var fyrst haldin árið 2004. Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri CCP, hefur lýst há­ tíðinni sem nokkurs konar „samblöndu þjóðfundar, stjórnlagaþings, Alþingi og útihátíðar“.

Á hátíðina mæta EVE Online spilarar og fjöldi blaðamanna frá helstu tölvuleikjatímaritum heims. Í gegnum árin hafa nýjungar verið kynntar þessa helgi fyrir spilurum og helginni verið lokað með tónleikum.