Netleikurinn EVE Online hefur verið valinn frumlegasti leikur ársins 2010 af lesendum leikjavefsíðunnar MMORPG.com. Lesendurnir fengu tækifæri til þess að kjósa á milli fimm leikja og hlaut EVE Online 32,7% allra atkvæða þegar allt hafði verið talið.

Á síðunni er framleiðanda EVE Online, CCP, hrósað fyrir að vera fremstur meðal jafningja í þróun leikja þar sem sýndarveruleiki er miðpunkturinn. CCP hefur átt góðu gengi að fagna að undanförnu en félagið fjölgaði starfsmönnum um 200 í fyrra.