Fyrirtækið CCP hefur greint frá því að tölvuleikurinn Eve Online sé kominn með 300.000 áskrifendur. Þessi tímamót náðust nú um leið og félagið fagnar sex ára afmæli sínu en áskrifendum hefur fjölgað verulega það sem af er ári.

Í upphafi árs var Eve Online með 244.000 áskrifendur en á þessum fimm fyrstu mánuðum ársins hefur áskrifendum fjölgað um 22% segir í tilkynningu félagsins.

Um leið hefur marg oft verið slegið met þeirra sem eru að spila leikinn samtímis en það met stendur nú í 53.850 þátttakendum.