Breska verðbréfafyrirtækið Evolution greindi frá því í dag að félagið á í einkaviðræðum um að kaupa keppinautinn William de Broe.

Kaupþing banki og Landsbankinn hafa verið orðaðir við William de Broe, sem hollenski bankinn ING hefur áveðið að selja.

Breskir fjölmiðlar hafa eftir heimildarmönnum sínum að kaupverðið geti verið í kringum 30 milljónir punda, eða rúmir fjórir milljarðar króna.

Kaupþing og Landsbankinn hafa einnig verið orðaðir við Evolution.