Evran hefur veikst á mörkuðum morgunsins gagnvart íslensku krónunni og er nú komin niður fyrir 120 krónu markið, en það var í 141 krónu í byrjun ársins, fór hæst á árinu í 143 krónur 11. febrúar en hefur veikst jafnt og þétt síðan.

Gengi evrunnar var sterkast þann 11. nóvember 2009 en þá fór það í 185,34 krónur, en veikast var gengi evrunnar í 82 krónum ef horft er til síðustu tíu ára. Síðast var gengið í 119 krónum 9. júní 2008.