Evran hefur styrkst umtalsvert síðustu vikur og er nú 1,32 á móti dollar.  Evran hefur þó ekki náð fyrri styrk en í lok nóvember 2009 var hún 1,51 á móti dollar og hefur síðustu fimm árin farið hæst í 1,58 á móti dollar.

Gengisvísitala íslensku krónunnar er nú 212,14.  Gengi krónunnar hefur ekki verið sterkara síðan í júní 2009.