Hlutabréf hækkuðu nokkkuð í Evrópu í dag og voru það helst bankar og fjármálafyrirtæki sem leiddu hækkanir dagsins að sögn Reuters fréttastofunnar auk þess sem orku- og iðnaðarfyrirtæki hækkuðu einnig.

Þá birti Seðlabanki Evrópu tölur sem gáfu til kynna að hagvöxtur hefði á öðrum ársfjórðungi aukist minna en gert hafði verið ráð fyrir og þykir það, að mati viðmælanda Reuters gefa tilefni til að ætla að stýrivextir á evrusvæðinu verði ekki hækkaðir frekar.

FTSEurofirst 300 vísitalan hækkaði um 1,7% en hafði í gær lækkað um 1,7%.

Evrópskir markaðir hækkuðu strax við opnun í morgun og héldust grænir til lok dags. Eins og fyrr segir voru það bankar sem leiddu hækkanir dagsins. Þannig hækkaði Deutsche Bank um 4,8%, Credit Suisse um 4,1% og Barclays um 5,1% svo dæmi séu tekin.

Í Lundúnum hækkaði FTSE 100 vísitalan um 1,6%, í Amsterdam hækkaði AEX vísitalan um 2% og í Frankfurt hækkaði DAX vísitalan um 1,3%.

Í París hækkaði CAC 40 vísitalan um 1,5% og í Sviss hækkaði SMI vísitalan um 2%.

Í Kaupmannahöfn og í Stokkhólmi hækkuðu OMXC og OMXS vísitölurnar um 2,9% og í Osló hækkaði OBX vísitalan um 1,4%.