Hlutabréf í Evrópu lækkuðu um 45% á árinu mælt með Euronext 100 vísitölunni. Lækkunin var langmest hér á landi, 94%, næst kom markaðurinn í Moskvu og þá í Brussel, eins og sjá má í meðfylgjandi töflu.

Hlutabréf í London komu á heildina litið hvað best út úr árinu, en þar lækkaði FTSE 100 vísitalan engu að síður um nær þriðjung.