Hlutabréfamarkaðir höfðu hækkað við lok markaða í dag eftir að hafa sveiflast undir og yfir núllið í mest allan dag.

Það voru helst lyfjaframleiðendur og símafyrirtæki sem héldu mörkuðum á floti í dag en bankar og fjármálafyrirtæki auk framleiðslufyrirtækja sýndu að mestu rauðar tölur í dag.

FTSE 300 vísitalan, sem mælir helstu hlutabréfavísitölur Evrópu, hækkaði um 0,5% í dag en hafði þó fyrr í dag lækkað um allt að 2,5%

Í Lundúnum hækkaði FTSE 100 vísitalan um 1,1%, í Amsterdam hækkaði AEX vísitalan um 0,3% og í Frankfurt hækkaði DAX vísitalan um 0,8%.

Í París hækkaði CAC 40 vísitalan um 0,4% og í Sviss hækkaði SMI vísitalan um 1,2%.

Í Kaupmannahöfn lækkaði OMXC vísitalan hins vegar um 0,3% og er það annar dagurinn í röð sem vísitalan lækkar.

Í Stokkhólmi hækkaði OMXS vísitalan um 1% og í Osló hækkaði OBX vísitalan um 1,5%.