Hlutabréfamarkaðir á meginlandi Evrópu höfðu hækkað við lok markaða í dag eftir að hafa sýnt rauðar tölur í nær allan dag. Hlutabréfamarkaðir á Norðurlöndunum lækkuðu hins vegar.

Að sögn Reuters fréttastofunnar má helst rekja hækkanir dagsins til hækkana á Wall Street.

Það voru helst orku- og framleiðslufyrirtæki sem leiddu hækkanir dagsins en bankar og fjármálafyrirtæki lækkuðu í dag.

Þannig hækkuðu félög á borð við Total, Shell og BP á bilinu 3,9% til 4,6%.

FTSEurofirst 300 vísitalan hækkaði um 0,7% eftir að hafa lækkað um allt að 1,5% um tíma í dag.

Í Lundúnum hækkaði FTSE 100 vísitalan um 1,8%, í Amsterdam hækkaði AEX vísitalan um 1,7% og í Frankfurt hækkaði DAX vísitalan um 0,5%.

Í París hækkaði CAC 40 vísitalan um 1,1% og í Sviss hækkaði SMI vísitalan um 0,5%.

Á Norðurlöndunum lækkuðu markaðir þó eins og fyrr segir. Í Kaupmannahöfn lækkaði OMXC vísitalan um 1,8%, í Stokkhólmi lækkaði OMXS vísitalan um 1% og í Osló lækkaði OBX vísitalan um 0,8%.