Evrópsk samkeppnisyfirvöld hafa framlengt frest vegna skoðunar á samkeppnislegum áhrifum kaupa Marel Food Systems [ MARL ] á Stork Food Systems til 21. apríl næstkomandi. Framlengingin er tilkomin vegna þess að uppfæra þurfti tæknilegar upplýsingar en ekki vegna samkeppnisréttarlegra sjónarmiða, segir í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Þessi frestur mun ekki hafa skaðleg áhrif á samning Marel Food Systems hf. og Stork N.V.