Landsvirkjun og Evrópski fjárfestingarbankinn (EIB) skrifuðu í dag, 23. mars, undir nýjan lánasamning að fjárhæð 70 milljónir evra, eða að jafnvirði um 11,3 milljarðar króna. Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, segir í tilkynningu til Kauphallar að með lánveitingunni er fjármögnun Búðarhálsavirkjunar langt komin. „Lánveitingar NIB og EIB endurspegla mikið traust á fyrirtækinu“.

Lokagjalddagi lánsins er á árinu 2031 og ber lánið millibankavexti auk hagstæðs álags. Í lánasamningnum er ákvæði um lágmarks lánshæfiseinkunn ríkissjóðs.

Í tilkynningunni segir að lánið sé mikilvægur áfangi í fjármögnun Búðarhálsavirkjunar, en Landsvirkjun undirritaði sambærilegt lán frá Norræna fjárfestingarbankanum þann 16. mars síðastliðinn að fjárhæð 70 milljónir Bandaríkjadollara. Áfram er unnið að því að klára fjármögnun Búðarhálsvirkjunar og er gert ráð fyrir því að henni ljúki innan skamms.