Frá þessu var greint á vef Danmarks Radio. Þar er vísað í færslu Mette Gjerskov atvinnuvegaráðherra Danmerkur á Twitter. Eftir því sem Viðskiptablaðið kemst næst hefur ekki verið gripið til sambærilegra aðgerða gagnvart Íslendingum. Refsiaðgerðirnar gegn Færeyingum felast í löndunarbanni og sölubanni á umræddum tegundum í ríkjum Evrópusambandsins.