Evrópusamtök frjálslyndra háskólanema, European Students for Liberty, halda svæðisráðstefnu í Reykjavík á morgun. Verður hún haldin á Háskólatorgi í Háskóla Íslands, í stofu HT-105.

Dagskrá ráðstefnunnar er eftirfarandi:

11.30 - Opnun

11.45 - Dr. Birgir Þór Runólfsson hagfræðidósent talar um íslenska þjóðveldið: skipulag án ríkisvalds

12.45 - Pallborðsumræður um lögleiðingu fíkniefna: Aðalheiður Ámundadóttir lögfræðingur, Helgi Hrafn Gunnarsson alþingismaður og Aleksandar Kokotovic stúdentaleiðtogi

13.45 - Hádegisverður

14.45 - Prófessor James W. Lark talar um frjálshyggjuhreyfinguna í Bandaríkjunum

15.45 - Lukas Schweiger, formaður ESL, European Students for Liberty, talar um markmið og leiðir ESL

16.15 - Prófessor Hannes H. Gissurarson gagnrýnir Fjármagn á 21. öld eftir Thomas Piketty

17.15 - Gunnlaugur Jónsson fjárfestir talar um nytjar og mennsku

Þeir Ingvar Smári Birgisson, Markús Vernharðsson og Þorsteinn Friðrik Halldórsson frá Háskóla Íslands og Jón Axel Ólafsson frá Háskólanum í Reykjavík skipuleggja ráðstefnuna fyrir hönd íslensku þátttakendanna.

Aðgangur er ókeypis og öllum heimill, en skráning nauðsynleg. Hægt er að skrá sig á heimasíðu ráðstefnunnar á Facebook.