Microsoft Íslandi hefur samið við höfuðstöðvar Microsoft um áframhald svokallaðs evrugengis Microsoft fram til júníloka á þessu ári. Hljóðar samkomulagið um að viðskipti Microsoft við íslensk fyrirtæki, stofnanir og almenning verði gerð á evrugenginu 150 krónum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Microsoft á Íslandi en gert er ráð fyrir því að þetta verði síðasta framlenging evrugengisins og að frá 1. júlí muni viðskipti Microsoft aftur miðast við hefðbundið gengi krónunnar.

Evrugengi Microsoft hefur verið við lýði í viðskiptum félagsins hér á landi frá því í desember 2008, en þessu fyrirkomulagi var komið á til að bregðast við algjöru frosti á hugbúnaðarmarkaðnum í kjölfar bankahrunsins og falls krónunnar.

„Evrugengisverkefni Microsoft hér á landi hefur heppnast framar vonum, því  það kom viðskiptum þeirra fjölmörgu íslensku hugbúnaðarfyrirtækja sem starfa daglega við sölu, þróun og þjónustu Microsoft-lausna af stað á nýjan leik eftir hrunið og hefur jafnframt sparað íslensku efnahagslífi umtalsverðan gjaldeyriskostnað,“ segir í tilkynningunni en þar kemur fram að samkvæmt útreikningum Microsoft Íslandi nemur gjaldeyrissparnaðurinn um tveimur milljörðum króna frá því að evrugengi Microsoft var fyrst sett á laggirnar.

Evrugengi Microsoft nálgast nú raungengi krónunnar, en miðað var við 145 krónur í viðskiptum Microsoft fyrstu þrjá mánuði ársins auk þess sem krónan hefur styrkst nokkuð að undanförnu.

Fyrstu sjö mánuði verkefnisins var evrugengið 120 kr., á síðari helmingi ársins 2009 var það 130 kr.