Excel Airways, dótturfélag Avion Group, vann tvenn af hinum eftirsóttu heimsverðlaunum ferðaþjónustunnar, World Travel Award, sem afhent voru nýverið á Barbados-eyjum. Excel Airways var bæði valið sem fremsta leiguflugfélag heims og sem fremsta leiguflugfélag Evrópu. Markaðsstjóri Excel Airways, Martin Lock veitti verðlaununum viðtökur en þetta var í ellefta sinn sem verðlaun þessi voru afhent. World Travel Awards verðlaunar það sem vel er gert í ferðaþjónustu. Þau eru eftirtektarverð og eftirsótt þar sem að baki þeim standa um 80 þúsund ferðaskrifstofur í yfir 200 löndum segir í tilkynningu frá félaginu.

Excel Airways er það flugfélag á Bretlandseyjum sem stækkað hefur hvað hraðast á undanförnum mánuðum. Félagið flýgur á yfir 40 áfangastaði við Miðjarðarhafið, Kanaríeyjar, Karabíska hafið, á Indlandi og í Kenýa. Flugfélaginu hefur tekist að bjóða úrvals þjónustu um borð í vélum sínum þrátt fyrir lág fargjöld. Er sú samsetning talin útskýra velgengni félagsins á árinu sem senn er að líða.