Excel Airways, sem er í eigu Avion Group, vann lesendaverðlaun breska dagblaðsins Daily Telegraph sem besta leiguflugfélagið í Bretlandi. Er þetta annað árið í röð sem félagið hlýtur verðlaunin, segir í tilkynningu frá Avion Group.

Fleiri en 25 þúsund lesendur Daily Telegraph tóku þátt í könnuninni, sem jafnframt er stærsta ferðakönnunin sem gerð er í Bretlandi. Verðlaunin hafa verið veitt á hverju ári frá 1998.

Excel Airways er áttunda stærsta leiguflugfélagið á Bretlandi og það tíunda stærsta í heimi, með um þrjár milljónir farþega á ári. Áfangastaðir Excel Airways eru aðallega í suður Evrópu.