Gengi bréfa í Exista [ EXISTA ] hafa fallið um rúm 8% það sem af er degi, og leiðir félagið lækkanir dagsins.

Century Aluminum, móðurfélag Norðuráls, hefur fallið um 7% og Bakkavör og SPRON hvort tveggja um 5%.

Gengi bréfa Exista hefur fallið um tæp 65% það sem af er ári og samtals um 80% á síðustu tólf mánuðum.

Úrvalsvísitalan hefur lækkað um rúm 2% það sem af er degi og stendur nú í 4.285 stigum samkvæmt Markaðsvakt Mentis.

Krónan hefur veikst um 1% í dag.