Vegna arðgreiðslu Kaupþings banka á hlutum í Exista til hluthafa bankans, fær Exista greidda 191.744.340 eigin hluti í gegnum eignahlut sinn í Kaupþingi banka. Þar af eru 2.171.250 hlutir til komnir vegna framvirks samnings dótturfélags Exista, Traustfangs ehf.