Exista mun ekki greiða vexti af skuldabréf sem var á gjalddaga í gær, 14. Október.

Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar en eins og kom í tilkynningu til Kauphallar 1. mars 2009, hyggst Exista leita samkomulags við handhafa skráðra skuldabréfa og víxla félagsins um frestun afborgana og vaxtagreiðslna sem koma til gjalddaga á meðan á viðræðum stendur við innlendar og erlendar fjármálastofnanir um endurskoðun lánasamninga og uppgjör gagnkvæmra krafna.

Eins og fyrr segir mun félagið ekki greiða vaxta greiðslu af skuldabréfum EXISTA 04 1 sem var á gjalddaga í gær þar sem viðræður standa enn yfir.