Exista hyggst kæra til Héraðsdóms Reykjavíkur ákvörðun sýslumannsins í Reykjavík um að veita fjárnám fyrir kröfu á hendur félaginu að fjárhæð 3,9 milljónir króna.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Exista en félagið hefur samkvæmt tilkynningunni lagt fram eignir sem varðveittar verða hjá sýslumanni meðan lögmæti fjárnámsins verður borið undir dómstóla.