Exista hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem undrast er um ákvörðun Kauphallarinnar frá því í dag (um áminningu og beitingu févítis) „enda er þar algerlega litið framhjá sjónarmiðum félagsins í viðkomandi máli,“ eins og segir í tilkynningunni.

„Samkvæmt ákvörðuninni bar Exista að hefja skráningarferli á nýjum hlutabréfum í flokki sem Kauphöllin hafði þegar samþykkt að taka úr viðskiptum í Kauphöllinni og hluthafafundur Exista hafði auk þess farið fram á að yrði afskráður tafarlaust,“ segir í tilkynningunni.

„Vandséð er hvernig slíkt skráningarferli hefði þjónað hagsmunum fjárfesta og hluthafa félagsins. Exista hefur jafnframt leitast við að upplýsa fjárfesta um óvissa stöðu félagsins eins og kostur er, án þess að gefa út ótímabærar áætlanir og ágiskanir um væntanlega útkomu viðræðna sem félagið á nú í við tugi innlendra og erlendra fjármálastofnana. Með þeim hætti telur Exista að fylgt hafi verið ábyrgri upplýsingagjöf til fjárfesta. Exista er því ósammála ákvörðun Kauphallar en hyggst að öðru leyti ekki tjá sig um hana að svo stöddu.“